Hvað er folf?

Frisbí golf - skemmtileg almenningsíþrótt
Frisbí golf er leikið á svipaðan hátt og venjulegt golf. Í stað golfkylfa og golfbolta nota leikmenn frisbídiska. Þessi íþrótt var mótuð á áttunda áratug síðustu aldar og á það sameiginlegt með venjulegu golfi að reynt er að klára hverja holu í sem fæstum köstum. Folfdisknum er kastað frá teigsvæði í átt að skotmarki sem er “holan”. Þessi hola getur verið mismunandi en oftast er um að ræða sérsmíðaðar körfur. Leikmenn taka hvert kast frá þeim stað þar sem diskurinn lenti síðast. Hæðir, hólar, tré o.f.l. sem finna má út um allan völlinn eru leikmönnum áskorun og hindrun í tilraunum þeirra við að koma disknum í körfuna. Loks endar “púttið” í körfunni og þeirri holu er þá lokið. Frisbígolf á sameiginlega gleðina og spennuna sem finna má í hefðbundnu golfi, hvort sem það er við að lenda löngu pútti í holu eða við það að lenda á tré miðja vegu niður flötina. Nokkur atriði eru þó frábrugðin. Venjulega þarf ekki að borga neitt fyrir að spila frisbígolf! Auk þess þarftu ekki að leigja eða kaupa mikinn búnað.

Hvar er hægt að leika Frisbígolf?
Haustið 2003 var settur upp við svæði ÍTR við Gufunesbæ í Grafarvogi, 9 brauta Frisbígolfvöllur. Hann var síðar stækkaður í 18 brautir. Það er fullkominn Frisbígolfvöllur með sérsmíðuðum körfum. Þeir sem eiga ekki disk geta jafnvel fengið lánaða/leigða diska hjá ÍTR. Einnig er völlur við Úlfljótssvatn og er hann aðgengilegur fjölskyldum sem dvelja á tjaldstæðinu en einnig geta spilarar komið þar við og tekið hring. Þá er við Hamra, tjaldsvæði Akureyringa, mjög skemmtilegur völlur.

Nánar um vellina

Hægt er að hafa samband við ÍFS með allar ráðleggingar, hvort sem er um að ræða hönnun valla, staðsetningu, kaup á körfum, útvegun á leikreglum, diskum og kennslu.

Kostirnir við frisbígolf

  • Lítill kostnaður – Að setja upp og hanna keðju-holu Frisbígolfvöll kostar ekki nema örlítið brot af kostnaði miðað við t.d. fótboltavöll eða leiktækjavöll. Á mörgum völlum hefur verið hægt að endurheimta kostnað við völlin á skömmum tíma með sölu flugdiska á staðnum. ÍFS er ávallt reiðubúið að leggja til þekkingu, tæki og sjálfboðaliða við að hanna og smíða Frisbígolfvöll.

  • Umhverfisvænt – Við smíði hefðbundinna boltagolfvalla þarf að leggja í miklar landslagsbreytingar með tilheyrandi jarðraski og röskun á gróðri og dýralífi á svæðinu. Flugdiska golfvellir nota náttúrulegt umhverfi og ekki er þörf á neinum sérstökum flötum eða sérstökum breytingum á náttúru staðarins. Tré og runnar eru notuð sem náttúrulegar hindranir og eru aldrei rudd eða söguð vegna hönnunar slíkra valla. Þannig er reynt að láta flugdiska golfvöllinn falla að náttúrunni en ekki öfugt.

  • Holl hreyfing – Nú þegar allir reyna að hugsa um heilsuna og læknar leggja áherslu á hreyfingu eru æ fleiri að reyna að finna sér líkamsrækt sem ekki er bara vöðvarækt og erfiði heldur líka skemmtun. Þannig aukast ekki aðeins lífslíkur heldur einnig lífsgæði. Folf skerpir neðri og efrihluta líkamans, kallar á góða og holla hreyfingu og eflir líkamlega og hugræna hæfileika án nokkurar hættu á líkamsmeiðslum eða svo kölluðum álagsmeiðslum. Hæfileikinn til einbeitingar eflist til muna við þá áskorun að þróa skottækni og við að komast framhjá hindrunum með skapandi hugsun. Leikmenn sem eru í slakri líkamlegri þjálfun geta auðveldlega byrjað hægt og síðan aukið hæfni sína stig af stigi eftir því sem líkamlegt ástand batnar og eflist. Íþróttinni fylgir útivist, sem mörg okkar óska að ungmenni mættu njóta oftar, af því allir geta leikið flugdiska golf; börn, unglingar og fullorðnir á öllum aldri.

Engin ummæli: